Hvað er innri þjónusta? Allir eru að þjónusta einhvern hvort sem það er hinn eiginlegi viðskiptavinur eða samstarfsaðili sem er að þjónusta viðskiptavininn.

Þjónusta er sala! Skoðum hvað þjónusta raunverulega er og hvað er einungis afgreiðsla. Svarað er spurningum eins og: „Hvað felst í því að veita gæða þjónustu?“ Þátttakendur læra að fanga athygli og koma á óvart en á sama tíma stýra væntingum og fara fram úr þeim, þ.e. veita framúrskarandi þjónustu án þess þó að fara í ofþjónustu og skapa falskar væntingar eða jafnvel tap. Óánægðir viðskiptavinir eru stórhættulegir! Þjálfaðir eru þættir eins og; að setja sig í spor viðskiptavinanna og búa til hollvini og að byggja upp gott orðspor sem er það dýrmætasta sem fyrirtæki geta skapað. Að veita þjónustu sem leiðir af sér sölu.

Fyrir hverja: Stjórnendur og liðsheildir