Hvernig metum við gæði samskipta? Hversu góðir hlustendur erum við? Af hverju löðumst við að fólki sem er leikið í samskiptum? Líklega af því að það veitir okkur vellíðan og við finnum fyrir virðingu og trausti. Í þjálfuninni lærum við lykilþætti sem skipta máli við að hámarka árangur okkar í samskiptum svo sem:
Listina að loka samskiptalykkjunni
Að reyna ávallt að setja sig í spor viðmælenda okkar
Að vekja áhuga
Að vera trúverðug og byggja upp traust samband
Að haga máli okkar eftir því við hvern við tölum svo sem ólíkar kynslóðir og fólk frá ólíkum menningarheimum
Að skilja hvað það er sem truflar samskipti
Að hvetja til og eiga einlæg og skilvirk samskipti
Fyrir hverja: Stjórnendur og liðsheildir