,,Hugsanir hafa mikil áhrif á hvað við gerum í lífinu og þar með má segja að hugarfar okkar móti lífið” – Dweck​

Við höfum val um hugarfar og hugarfar grósku hjálpar okkur að takast á við áskoranir í síbreytilegu umhverfi. Að læra að hugsa á grænu ljósi – sem þýðir að allt er mögulegt á þeim tímapunkti og allar hugmyndir eru góðar hugmyndir. ,,Ef það er vilji þá er leið”. Að læra að virkja og nýta sköpunarkraftinn og hugsa alltaf; á hvaða hátt get ég..?- Á hvaða hátt getum við..? Skapandi hugsun sem tekur burt takmarkanir byggðar á því sem var og því sem er. Við förum yfir aðferðir sem þjálfa þátttakendur í að upphugsa nýjar hugmyndir og leiðir án takmarkana. Að þora að fara upp úr hjólfarinu ,,the power of habit” og út fyrir þægindahringinn, taka ígrundaða áhættu og koma fram með djarfar lausnir. ​

Að ,,sleppa okkur lausum” og skilja betur hver við erum og hvað drífur okkur áfram.​
Útkoman gæti mögulega verið það sem til þarf til bætingar, þróunar og jafnvel umbreytingar. Það eru takmarkalausir möguleikar með skapandi liðsheild! ​

Fyrir hverja: Stjórnendur og liðsheildir