Leiðin að hamingju er ferðalagið sjálft, ekki áfangastaðurinn. Hamingja er tilfinning sem þú finnur fyrir þegar þú veist að lífið er gott, hún er tilfinning ánægju og jákvæðni og kallar jafnvel fram bros. Hamingja er samkvæmt jákvæðu sálfræðinni tilfinning um að lífið sé vel þess virði að lifa því. Þegar þér líður vel og þú finnur fyrir stolti, eftirvæntingu og / eða létti og upplifir fullnægju í lífinu – þá er talað um að njóta hamingju. Hamingja er ekki að fá það sem þú vilt, hún er ánægja með það sem þú hefur. Að upplifa hamingju hjálpar okkur að slaka á og því minnka streitu. Hamingja getur því verið mælikvarði á hve vel við tökumst á við áskoranir, erfiðleika og sorg.

Fyrir hverja: Stjórnendur og liðsheildir