Mikilvægi þess að fá endurgjöf frá yfirmanni og á sama tíma mikilvægi þess að sinna hlutverki mannauðsstjórnunar í leiðtogahlutverkinu fær stöðugt aukið rými í nútíma stjórnunarháttum. Það hefur sannað sig að það ber ávöxt fyrir öll.
Lærum hvernig nýta megi markþjálfun til að ná fram því besta hjá hverjum einstaklingi á þeirra forsendum.
Að tryggja samhljóm á milli fyrirtækis og starfsmanns.
Aðferðir til að tryggja ábyrgð og eignarhald og á sama tíma auka helgun í starfi en um leið tryggja langtímaárangur með því að huga að velferð.
Að nýta bæði verkefnastýrða „transactional“ og umbreytinga „transformational“ aðferðafræði til að þróa starfsmanninn.
Að nýta leiðbeinandi endurgjöf á hvetjandi hátt.
Fá innsýn í ólíka aðferðafræði svo sem „GROW“ og „Navigational coaching“.
Læra að beita virkri hlustun og spyrja krefjandi og áhrifaríkra spurninga.
Að horfa á framtíðina og hvaða möguleika starfsfólkið okkar á.
Fyrir hverja: Stjórnendur