Þjálfunin er öflug og ætluð þeim sem ætla að ná árangri með framsögu með því að fanga athyglina strax

Áherslur í þjálfuninni byggja m.a. á bókinni „Excellent Presentation Skills of Steve Jobs“, TED framsögutækni og annarri árangursríkri tækni sem hefur sannað sig.

Þjálfunin er öflug og ætluð þeim sem ætla að ná árangri með framsögu með því að; fanga athyglina strax, hrífa aðra með sér, selja hugmyndir sínar, geisla af sjálfstrausti og njóta þess að miðla.

Við notum raunverulegt efni sem þátttakandinn er að vinna með til að tryggja sem besta nýtingu á vinnunni. Þjálfun í augnablikinu, „coaching in the moment “, tryggir árangur strax og með því að skoða sjálfan sig á upptöku og rýna til gagns má ná öflugum framförum á stuttum tíma.