Jákvæð leiðtogafærni – nútíma stjórnun
Lögð er áhersla á hagnýtingu jákvæðrar sálfræði í leiðtogahlutverkinu þar sem leitast er við að draga fram bestu eiginleika hvers og eins. Að hafa kjark til að skapa menningu til árangurs, nýta aðferðir markþjálfunar til að vera þjálfari „coach“ teymisins, hafa þrautseigju til að umbreyta sjálfum sér og umhverfi sínu og karakter til að þora að stjórna.
Skilgreining á hlutverki leiðtogans / stjórnandans / markþjálfans
Hagnýting jákvæðrar sálfræði í leiðtogahlutverkinu
Að stjórna með aðferðum markþjálfunar
Að viðhalda og skapa virðisaukandi teymi
Að vera fyrirmynd
Að þora að stjórna – „Dare to lead”
Styrkleikagreining – þekkjum og eflum eiginleika okkar og annarra
Valdefling til ábyrgðar
Leiðtogatjáning og samskiptahæfni
Hvetjandi og leiðbeinandi endurgjöf
Breytingastjórnun – upp úr hjólfarinu – tækifæri til vaxtar
Viðhorfsstjórnun og tilfinningagreind
Temjum okkur hugarfar grósku – skapandi hugsun
Helgun og velferð – þrautseigja og seigla
Viðmið í lengd þjálfunar er 4 x 4 klst. En hægt að taka á lengri eða skemmri tíma.
Fyrir hverja: Stjórnendur