Hættu að væla Komdu að Kæla

Andri er stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð sem hefur að leiðarljósi aðferðir sem höfðu svo mikil áhrif á líf Andra að hann skilgreinir sjálfan sig sem “endurfæddan”. Vendipunkturinn þar sem áratugir af langvarandi, sárum verkjum í mjóbaki og mígreni hurfu loksins. Þessi umbreyting er það sem leiddi til þess að hann fór að miðla ávæningi kælimeðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða, til þúsunda manna. Með það að markmiði að leiðbeina öðrum í átt að sömu valdeflandi upplifun.

Innblásinn af áhrifum beinnar kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að fyrsta vali þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að fara ofan í ískalt vatn, ögrar gömlum skoðanamynstrum, dýpkar skilning okkar á öndun, undir handleiðslu Andra. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til þess að ná aftur stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að vera til í auga stormsins.

Í þessum fyrirlestri mun Andri kynna hugtök og undirstöðuatriði kenninga hans, deila sinni persónulegu vegferð og kynna áhorfendur fyrir Wim Hof öndunartækninni.