Uppskrift að góðri geðheilsu – fræðsla um HAM og vellíðanustaði

Uppskrift að góðri geðheilsu – fræðsla um HAM og vellíðan

Fræðsluerindinu er ætlað að vekja starfsfólk og stjórnendur til vitundar um mikilvægi þess að huga að geðheilbrigði á vinnustað. Leitast er við að hvetja til og stuðla að opinskárri umræðu um geðheilbrigði á vinnustað og er fyrirlestur af þessu tagi frábært fyrsta skref í þá átt.

Fjallað er um:
• Mikilvægi þess að setja geðheilbrigði á vinnustað á dagskrá
• Helstu áskoranir sem stjórnendur og starfsfólk stendur frammi fyrir í tengslum við geðheilbrigði á vinnustað
• Helstu orsakir, afleiðingar og merki um neikvæða geðheilsu og vanlíðan á vinnustað
• Einkenni algengra geðvandamála
• Gagnlegar og viðurkenndar aðferðir til að hlúa að eigin geðheilsu og bæta líðan á vinnustað (HAM)

Fræðsluerindið er 45-50 mínútur og gefinn er tími fyrir spurningar og umræður að því loknu.

Aðrir fyrirlestrar sem eru í boði hjá Mental ráðgjöf:
• Samskipti og sjálfstyrk hegðun og heilbrigð mörk
• Sigrumst á streitunni – vellíðan í lífi og starfi
• Sálræn fyrsta hjálp á vinnustað – stuðningur í krefjandi aðstæðum
• EKKO – forvarnir og viðbrögð á vinnustað

Helena Jónsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Mental. Helena er klínískur sálfræðingur og hefur starfað sem slíkur um árabil. Í störfum sínum undanfarin 25 ár hefur Helena öðlast víðtæka reynslu á ólíkum sviðum rekstrar, stjórnunar og nýsköpunar. Hún hefur haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofa og sinnt ráðgjöf til fyrirtækja á sviði geðheilsu og starfsmannamála. Helena starfaði um árabil sem stjórnandi í fjármálafyrirtækjum, sem framkvæmdastjóri geðheilsumála hjá Læknum án landamæra í fjölda landa ásamt því sem hún leiddi vinnu við stofnun Lýðskólans á Flateyri og var fyrsti stjórnandi skólans.   
 
Hilja er meðeigandi Mental og sérfræðingur okkar í mannauðsstjórnun. Hún er tvöfaldur meistari, annars vegar í kennslufræði og hins vegar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði. Hilja á að baki áralanga reynslu sem fyrirlesari og ráðgjafi á sviði forvarna og sem höfundur kennsluefnis fyrir Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, um kynheilbrigði og um andlega og félagslega heilsu. Hún hefur starfað sem kennari til fjölda ára og komið að ýmissi fræðslu er varðar kynheilbrigði, mörk og samskipti. Hilja leiddi einnig menningar- og æskulýðsmál í fyrrum sveitarfélagi sínu og hefur sinnt formennsku ýmissa félaga. Hilja situr í stjórn Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi.
 
Að auki hafa færir sérfræðingar í mannauðsstjórnun lagt þróun og hugmyndavinnu Mental lið. Einvala lið fólks hefur unnið með okkur að þróun og úrvinnslu úttekta, framsetningu á niðurstöðum auk aðkomu að fræðilegum undirstöðum þeirra alþjóðlega viðurkenndu aðferða sem stuðst er við. Þegar þörf krefur höfum við aðgang að einvala liði sérfræðinga til að aðstoða okkur við vinnu við verkefni.