Hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi

Sönn og árangursrík forysta kemur að innan. Hún hvílir á þáttum á borð við sjálfsskilning, gildismat, framtíðarsýn og siðferði. Markviss þjálfun í framsögn og tjáningu myndar svo brú á milli hugsjóna og veruleika. Við þurfum að geta miðlað hugmyndum, vakið traust og haft áhrif á fólk á jákvæðan hátt. Leiðtogar verða að geta tjáð sig af öryggi og beitt virkri hlustun. Á þessu námskeiði læra þátttakendur að listina að standa með sjálfum sér, tala skýrt og leiða aðra á trúverðugan hátt.

Námskeiðið samanstendur af fjögurra klukkustunda þjálfun og er ætlað þeim sem vilja efla sig sem leiðtoga, jafnt í starfi sem í daglegu lífi.

Að námskeiðinu loknu mun þátttakandi:

• Þekkja til forystu sem leiðir til árangurs og hlífir leiðtoganum við kulnun.
• Hafa kynnst siðferðilegri og traustri aðferð fyrir leiðtoga.
• Kunna að selja hugmyndir.
• Kunna að flytja árangursríkar kynningar.
• Kunna skothelda aðferð við að undirbúa ,,óundirbúna ræðu”.
• Þekkja virka hlustun.
• Geta átt stefnumót við andstæðar skoðanir.