Ég er ekki tabú – mikilvægi geðræktar og geðforvarna
Fyrirlesturinn „Ég er ekki tabú – mikilvægi geðræktar og geðforvarna” má sníða að hinum ýmsu hópum, enda hefur Silja Björk mikla reynslu af forvarnarfræðslu í grunn- og framhaldsskólum en hefur einnig nýtt reynslu sína sem stjórnandi til þess að fjalla um málefni geðræktar í mannauðsstjórnun fyrirtækja. Fyrirlesturinn byggir á hennar eigin reynslu, reynslusögum annarra og þeirri þekkingu sem hún hefur sankað að sér í gegnum baráttuna á síðastu árum.
Silja Björk hefur undanfarin áratug látið mikið á sér kveða í málefnum geðsjúkra á Íslandi. Silja Björk, sem er fædd og uppalin á Akureyri, veiktist af þunglyndi sem ung kona og fann fyrir miklum fordómum í samfélaginu. Árið 2013 skrifaði hún sína fyrstu grein, „Þunglyndi er líka sjúkdómur”, sem vakti mikla athygli á landsvísu og hefur Silja Björk allar götur síðan lagt hönd á plóg til þess að uppræta fordóma í garð geðsjúkra á Íslandi.
Fyrirlestur hennar á TEDx ráðstefnunni í Hörpu árið 2014, „The Taboo of Depression” fór eins og eldur um sinu í íslenskum fjölmiðlum og hefur fengið yfir 200.000 spilanir á YouTube. Ári síðar var Silja Björk ein stofnenda #égerekkitabú samfélagsmiðlabyltingarinnar sem var mikilvægt fyrsta skref fyrir mörg sem búa með geðsjúkdómum. Þá var Silja Björk einn fjögurra viðmælanda í sjónvarpsþáttunum Bara geðveik undir stjórn Lóu Pindar og vakti þar mikla athygli þegar hún ræddi sjálfsvígstilraun sína með fjölskyldunni sinni fyrir framan þjóðina. Sjálfsvígsforvarnir eru henni ofarlega í huga, sem og aðrar forvarnir í þágu geðheilbrigðis og geðræktar.
Silja Björk hefur haldið ótal fyrirlestra í skólum, fyrirtækjum og hópum um málefni geðsjúkra, stöðu geðsjúkra barna í skólakerfinu og geðrækt innan fyrirtækjamenningar. Fyrsta bók hennar Vatnið, gríman og geltið sem kom út árið 2020 fjallar um sögu hennar af áföllum, sjálfsvígstilraunum og þunglyndi en sýnir umfram allt ljósið í batanum. Silja Björk var meðhöfundur Öldu Karenar Hjaltalín að Lífsbiblíunni, sem varð fljótt metsölubók og skapaði miklar umræður í samfélaginu. Silja Björk hefur einnig setið í stjórn Geðhjálpar, unnið náið með Grófinni á Akureyri og Píeta samtökunum.
Silja Björk hefur einnig látið á sér kveða í réttindabaráttu kvenna og jaðarsettra, hinsegin fólks og þeirra sem skortir málpípu á opinberum vettvangi. Silja Björk starfar nú sem sérfræðingur í samfélgsmiðlum hjá auglýsingastofunni Pipar/TBWA og er aðstoðarframkvæmdarstjóri Eden Foundation, sem heldur utan um ráðstefnuna Psychedelics as Medicine þar sem rætt er á faglegan hátt um notkun hugvíkkandi efna í meðferðarskyni.