Núvitund og vellíðan

Núvitund hefur náð miklum vinsældum í vestrænum löndum undanfarin áratug vegna þess góða ávinnings sem niðurstöður rannsókna sýna og hefur það orðið til þess að mörg fyrirtæki innleiða núvitund inn í starfsemi sína til að bæta árangur og líðan starfsmanna sinna.

Í fyrirlestrinum kynnir Margrét núvitund og ávinning af núvitundariðkun. Þátttakendum verða kynntar einfaldar núvitundaræfingar og boðið að prófa að stunda núvitund.
Margrét tengir núvitund við aðferðir úr jákvæðri sálfræði sem skv. rannsóknum stuðla enn frekar að hamingju og vellíðan.

Um leiðbeinandann:

Margrét Sigurbjörnsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt og hefur lokið diplómanámi á masterstigi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ. Hún starfar sem deildarstjóri í Landsbankanum þar sem hún hefur síðastliðin 3 ár m.a. haldið fyrirlestra og námskeið um núvitund og jákvæða sálfræði. Einnig hefur hún boðið upp á núvitundarnámskeið sjálfstætt. Hún hefur sótt fjölmörg námskeið í núvitund og skrifað lokaverkefni um núvitund og leiðtogafærni. Hún er hugleiðslu- og núvitundarkennari frá School of Positive Transformation, hefur lokið Learning To Lead Mindfulness-Based Strengths Practice (MBSP) hjá VIA Institute on Character, The Present for Adults þar sem áhersla er lögð á þjálfun núvitundar í daglegu lífi og er í námi hjá Bangor University í Mindfulness – Teacher Training Pathway (MBSR).
Margrét lítur á núvitund sem lífstíl og nýtur þess að deila sinni þekkingu með fólki.