Hagnýtur húmor

Þessi fyrirlestur er framhald af „Húmor Virkar“ sem hefur slegið í gegn og verið fluttur hjá yfir 200 fyrirtækjum og félögum og fengið frábæra dóma í hvert sinn.

Hagnýtur Húmor er rökrétt framhald þar sem er farið er meira í framkvæmd og hvað við getum gert strax í dag til að láta Húmor nýtast okkur.

Forverinn Húmor Virkar fór yfir AF HVERJU Húmor er svona öflugur á mörgum sviðum s.s. í fræðslu, heilsu, samskiptum og atvinnulífinu en NÚNA fáum við sjálf verkfærin í hendur og upplifum raundæmi frá Íslandi. Þessi nýji fyrirlestur er að hluta unnin upp úr samnefndu námskeiði í EHÍ haustið 2026, og er ekki síður skemmtilegur og fræðandi en forverinn

um höfund og fyrirlesara:

Sveinn Waage starfar sem lærður leiðsögumaður og fyrirlesari ásamt kennslu í bjórfræðum og ráðgjöf í markaðs- og samskiptamálum. Hann hefur átt farsælan feril hjá fyrirtækjum eins og 365, Birtingi, Ölgerðinni, Meniga og Íslandsstofu. Hann sá um samfélagsmiðla Guðna Th. Jóhannessonar í kosningum og ráðgjöf. Sveinn vann hjá Íslandsstofu í 4 ár þar sem hann sá um samfélagsmiðla fyrir margverðlaunuðu markaðsherferðina, „Inspired by Iceland“ Sveinn hefur einnig verið talsvert í ýmiskonar skemmtun og framkomu frá 1998 þegar þurfti fyrstur að burðast með titilinn „Fyndasti maður Íslands“ – Þjóðin hefur jafnað sig að mestu.

Umsagnir:

“Fyrirlesturinn var frábær og féll í mjög góðan jarðveg hjá okkur. Við höfum gengið í gegnum ýmislegt á undanförnum árum og starfsfólk okkar tekst á við erfið verkefni daglega, oft undir miklu álagi. Þá er mikilvægt að geta hlegið saman af og til og brosað framan í heiminn þrátt fyrir allt. Sveinn náði svo sannarlega að minna okkur á það enda fléttar hann eigin lífreynslu inn í fyrirlesturinn sem gerði hann viðeigandi fyrir okkur Grindvíkinga. Ég er viss um að fyrirlesturinn muni skila sér í betri starfsanda, aukinni samheldni og um leið betri þjónustu við íbúa.”

Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavikur.

„Algjörlega frábær fyrirlestur! Mjög fyndinn (auðvitað) en líka fróðlegur og fær mann til að hugsa :)“

Stefanía, Advania

„Þessi fyrirlestur er ekki bara fræðandi og fyndinn, heldur hjartnæmur og einlægur líka.“

Freyr Eyjólfsson gleðigjafi

„Sveinn endaði heilsuviku hjá okkur í EFLU með glæsibrag þar sem við hlógum saman. Við lærðum að húmor er heilsueflandi fyrir okkur sem einstaklinga og getur hjálpað til í amstri dagsins auk krefjandi verkefna bæði í leik og starfi. Takk fyrir” – Sylgja Dögg, EFLA