Frammistaða og liðsheild

Í þessum einlæga og hvetjandi fyrirlestri fer Björgvin Páll Gústavsson víða um völl og deilir reynslu sinni af því að takast á við pressu, streitu og krefjandi aðstæður bæði í íþróttum og lífinu.

Hann fjallar um mikilvægi öndunar, endurheimtar, trausts og samvinnu og hvernig rétt hugarfar getur hjálpað einstaklingum og teymum að ná hámarksframmistöðu.

Sem handboltamaður, frammistöðuþjálfari, fyrirlesari, rithöfundur, eiginmaður og fjögurra barna faðir nálgast Björgvin efnið frá mörgum sjónarhornum.

Hann deilir praktískum aðferðum til að styrkja einstaklinginn, auka jafnvægi í krefjandi aðstæðum og byggja upp sterka liðsheild þar sem traust og samvinna eru lykilatriði.