Vel nærð náum við árangri

Getur röng næring og inntaka bætiefna og vítamína skaðað heilsuna?
Hvaða næring gefur okkur orku til að endast daginn bæði í leik og starfi, og hvaða fæðutegundir, vítamín eða bætiefni skerpa einbeitingu og minni?
Er það næringunni um að kenna ef ég er alltaf eins og hengd upp á þráð og pirr/aður/uð?

Það vefst ekki fyrir næringarfræðingnum Betu Reynis að svara þessum og öðrum spurningum á líflegum hvatningarfyrirlestrum og námskeiðum, þar sem farið er yfir mátt næringar og mikilvægi þess að ástunda heilbrigðan lífsstíl og jákvæð lífsviðhorf.

Á mannamáli og án allra öfga kennir Beta okkur einfaldar en þrælöflugar leiðir til að hámarka heilsu, úthald og hamingju. Kynntar eru aðferðir sem auðvelda okkur að taka meiri ábyrgð á eigin heilsu og efla innra með okkur aukinn drifkraft. Hvorutveggja skilar okkur í mark langþráðra heilsumarkmiða.

Beta Reynis er menntaður næringarþerapisti frá CET og útskrifaðist sem næringarfræðingur með meistaragráðu frá Háskóla Íslands árið 2016. Heiti meistararitgerðar hennar er Mannrækt á vinnustað þar sem rannsökuð voru inngrip heilsufræðinga á vinnustaði og útfærsla mismunandi leiða til að efla heilbrigði og ánægju fólks á vinnumarkaði.

Beta er þrautreyndur fyrirlesari, sem haldið hefur fjölmarga fyrirlestra fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök út um land allt. Hún er vinsæll ráðgjafi og álitsgjafi í fjölmiðlum auk þess að hafa í bæði einkatímum og á námskeiðum leiðbeint þúsundum einstaklinga í átt að betri heilsu og líðan. Sjálf býr Beta yfir þeirri erfiðu reynslu að detta tímabundið út af vinnumarkaði í kjölfar lífshættulegra veikinda, en með jákvætt viðhorf og seiglu að vopni náð að efla heilsuna og koma tvíelfd til baka. Í nýlegri bók sinni, Þú ræður, er að finna fjögurra vikna matar- og lífsstílsprógramm sem byggt er á þeim aðferðum sem Beta þróaði og nýtti sér á sínum tíma. Þær aðferðir hafa nú þegar skilað fjölmörgum skjólstæðingum hennar frábærum árangri.

· Stakur fyrirlestur

Tímalengd, áherslur, efnisval og fyrirkomulag allra fyrirlestra og námskeiða er alfarið sérsniðið að þínum óskum. Hægt er að vinna með ákveðna þætti ef óskað er, s.s. blóðsykursstjórnun, hvatninga- fyrirlestur um hvað þarf til að stíga skrefin í rétta átt eða jafnvel, hvernig mögulega megi betrumbæta mötuneytið.

Heildræn heilsuefling á vinnustað eykur afköst, starfsgleði og samstöðu og fækkar veikindadögum. Það að hlúa vel að starfsfólki hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á vinnustaðinn heldur einstaklinginn sjálfan, fjölskyldu, vini og samfélagið allt.