Náðu árangri

Í fyrirlestrinum Náðu Árangri talar Ásdís Hjálmsdóttir Annerud íslandsmethafi í spjótkasti um aðferðirnar sem hún nýtti sér til að komast á þrenna Ólympíuleika og klára doktorsnám á sama tíma. Fókusinn er á hvernig við getum fundið út hvaða útkomu við viljum fá, sett okkur markviss markmið til þess að komast þangað og þróað með okkur vinnings hugarfarið til þess að geta tekist á við pressu og mótlæti. Á þennan hátt getum við náð árangri á hvaða sviði sem er.

Ásdís Hjálmarsdóttir er lyfjafræðingur og með doktorspróf í ónæmisfræði en vinnur þessa dagana sem fyrirlesari og frammistöðu ráðgjafi. Hún er einnig Íslandsmethafinn í spjótkasti og þrefaldur Ólympíufari og vinnur mikið með íþróttafólki varðandi hugræna frammistöðu. Hún sótti örnámi í íþróttasálfræði í HR veturinn 2024-2025. Ásdís hefur haldið fyrirlestra fyrir flest af stærstu fyrirtækjunum á Íslandi og fjölmörg íþróttafélög og sérsambönd líka. Auk þess hefur hún hjálpað hátt í 200 íþróttafólki í hinum ýmsu íþróttum og frá fjölmörgum löndum með hugræna frammistöðu í gegnum ráðgjöf og námskeið.