Styrkleikar okkar speglast í verkefnum sem við leysum vel af hendi. Þeir er sambland af hæfileikum, þekkingu og færni. Gildin eru vegvísir okkar í lífinu. Styrkleikar eru í raun gildin okkar margfölduð með tilfinningunni! Hversu vel þekkjum við gildin okkar? Hversu oft spyrjum við okkur hvort gildin okkar samræmist því umhverfi sem við störfum og lifum í. Hversu vel virkjum við og þróum styrkleikana? Þekkjum við mörkin þegar styrkleikar eru vannýttir og þegar þeir eru ofnýttir? Lærðu að þekkja þig betur og að nýta tækifærin til að hámarka þinn árangur – þína lífsfyllingu. Búum til styrkleikahjólið okkar, einnig er mögulegt að taka rafrænt próf um okkar persónuleika og nýta sem vegvísi til að vinna sem best með eigin styrkleika.

Fyrir hverja: Stjórnendur og liðsheildir