Við hjá PRO erum stolt af því að spanna víðáttumikinn skala, allt frá þessu stórfenglega í þetta persónulega og einlæga. Okkar fólk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu viðburða. Okkar sérgrein er að efla mikilvægustu auðlind fyrirtækja.

PRO þjónusta

Alhliða viðburðaþjónusta

Okkar fólk hefur víðtæka reynslu í skipulagningu hverskonar viðburða af öllum stærðum. Við sjáum um allt af fagmennsku frá hinu smæsta til hins stærsta, við vinnum með þér að því að skapa óviðjafnanlega upplifun sem slær í gegn. Okkar sérgrein er að efla mikilvægustu auðlind fyrirtækja. Við leggjum ríka áherslu á að hlusta og greina til að finna þetta extra sem þarf til að hámarka árangur fyrirtækis og ánægju mannauðs.

Teymið okkar

Jón S. Þórðarson

Stofnandi og eigandi

Jón starfaði sem ljósahönnuður og sýningastjóri í Borgarleikhúsinu í yfir áratug. Hann hefur víðtæka reynslu sem viðburðastjóri og hefur starfað með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins að flóknum og fjölbreyttum viðburðum, verðlaunaafhendingum og
 beinum sjónvarpsútsendingum. Hann er með BSc í viðskiptafræði.

jon@proevents.is
898 9798

Ragnheiður Aradóttir

Stofnandi og eigandi

Ragnheiður hefur áralanga og yfirgripsmikla reynslu við framleiðslu og skipulagningu ráðstefna, hvata- og hópaferða. Hún er með BBA í ferðamála- og hótelstjórnun og hefur stýrt fjölda viðburða af ýmsum toga. Ragnheiður er PCC markþjálfi og með Dip.Master í Jákvæðri sálfræði ásamt MSc námi í mannauðsstjórnun. Hún heldur fjölbreytt námskeið og fyrirlestra ásamt því að stýra starfsdögum, stefnumótun og hópefli.

ragnheidur@proevents.is
857 1700

Esther Jónsdóttir

Verkefna- og viðburðastjóri

Esther hefur víðtæka reynslu af störfum í viðburðastjórnun. Hún hefur unnið við fjölmarga viðburði á vegum PROevents og Vrije Universiteit Amsterdam. Esther er með MSc í umhverfisstjórnmálafræði frá Vrije Universiteit Amsterdam og viðbótardiplómur í hagnýtri jafnréttisfræði og fötlunarfræði. Hún starfar einnig hjá jafnréttissamtökunum This is Gendered.

esther@proevents.is
849 1300

Rakel Jónsdóttir

Verkefna- og viðburðastjóri

Rakel hefur unnið að skipulagningu fjölda viðburða PROevents og hefur sérhæft sig í hönnun og uppsetningu þeirra. Hún hefur einnig reynslu úr kvikmyndaiðnaðinum í sviðsdeild. Rakel er með BA í innanhús- og húsgagnahönnun við Istituto Europeo di Design á Ítlalíu og stundaði áður listnám í lýðháskóla í Danmörku.

rakel@proevents.is
849 1200

ÁstríðaAðlögunarhæfniÁreiðanleiki

Með gildin að leiðarljósi leggur PRO höfuðáherslu á að veita áreiðanlega þjónustu svo að viðskiptavinir geti náð markmiðum sínum og vinnustaðarins á sem hagkvæmastan og árangursríkastan hátt! Við nálgumst öll verkefni af ástríðu og trúum því jafnframt að markviss aðlögun sé lykilatriði fyrir útkomu sem rúmar þarfir og óskir viðskiptavina.